Dómnefndarálit. Samkeppni um skipulag fyrir Landspítala - háskólasjúkrahús

Like dokumenter
R3123A Markarfljótsvirkjun B

Virkjunarkostir til umfjöllunar í 3. áfanga rammaáætlunar Kafli 6.52 R3154A Blöndudalsvirkjun

Leiðbeiningar

majl Eríndi nr. Þ /^ 3 /^ 3 komudagur 2% l 20IÍ

gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014 og 360/2016 Lög um mannvirki, nr.

Leiðbeiningar gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014 og 360/2016 Lög um mannvirki, nr.

Verkefnahefti 3. kafli

Lausnir Nóvember 2006

skrifstofa eigna og atvinnuþróunar Reykjavík, 27. febrúar 2017 R

sþ Tillaga til þingsályktunar [115. mál]

DEILISKIPULAG SPRANGAN

Meginreglur um bótaábyrgð eignarnema

Hægribeygjur af þjóðvegum Rannsóknarverkefni. Mat á umferðaröryggi mismunandi útfærslna

Frístundahús. Leiðbeiningar. Leiðbeiningar. Mannvirkjastofnun

að veita meira fjármagni NDF til að styðja við loftslagsverkefni í þróunarlöndum þar sem tekjur eru lágar

Nutricia. næringardrykkir

Gróðureldar náttúruvá viðvaranir - spár. Sigrún Karlsdóttir Sibylle von Löwis Trausti Jónsson

Gönguþveranir. Desember 2014

Virkjunarkostir til umfjöllunar í 3. áfanga rammaáætlunar Kafli 6.31 R3133A Bláfellsvirkjun

Kaup Basko ehf. á Eldum rétt ehf.

STOPPISTÖÐVAR Á ÞJÓÐVEGUM Í DREIFBÝLI - SAMANBURÐUR MILLI LANDA

Alþingi Erindi nr. Þ 140/1532 komudagur Umsögn. Barnalög (barns, forsjá, umgengni o.fl.) 290. mál lagafrumvarp 140. löggjafarþingi.

Norska fiskveiðistjórnunarkerfið og markaðssetning norskra afurða. Jóhannes Pálsson, framkvæmdastjóri framleiðslu Norway Seafood AS.

TILKOMA, INNTAK OG FRAMKVÆMD TILKYNNINGARFRESTS, SKV. 1. MGR. 51. OG 1. MGR GR. VÁTRYGGINGARSAMNINGALAGA, NR. 30/2004.

LV Heiðagæsaathuganir á Snæfellsöræfum 2012

Endurskoðun reglna um greinarmerkjasetningu skýrsla fyrir Íslenska málnefnd

Þverá, Langadalsströnd vhm 038 Rennslislykill #6

Magn og uppspretta svifryks

Upplýsingar er varða störf erlendis (Dags Listinn verður uppfærður reglulega eftir því sem nýjar upplýsingar berast).

Kjarnaborun í Tjörnessetlögin til að meta þroska lífrænna efna

Göngubrýr. Íslensk hönnun. 6. apríl Magnús Arason Fagstjóri brúasviðs EFLU

Kongeriket Norges Grunnlov

PÆLINGAR UM NPA EFNI:

Skýrsla um reynslu Norðmanna af sæstrengjum

2. Járnbending. Almenn ákvæði, sjá verklýsingu. 2.1 Gæðakröfur, sjá verklýsingu. 2.2 Tákn: F201

Eksamen FSP6074 Islandsk II PSP5732 Islandsk nivå II. Nynorsk/Bokmål

Handbók um Umferðarmerki. Inngangur

Varðar: Athugasemdir við Frummatsskýrslu Samkeppniseftirlitsins, rit nr. 2/2015.


Ordliste for TRINN 1

Smárabrekka Lyngbrekka Grasabrekka Blómabrekka Fjólusveigur Liljusveigur

KÖNNUNARSKURÐIR Í SVONEFNDA ÞORLÁKSBÚÐ Í SKÁLHOLTI

Ordliste for TRINN 2 (utviklende matematikk-oppgavehefter 2Aog 2B- refleksjonsord som kan hjelpe å forstå oppgaver)

EES-viðbætir við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins Nr. 49/321. frá 20. desember 2017

(Lagt fyrir Alþingi á 145. löggjafarþingi ) I. KAFLI Breyting á lögum nr. 57/1996 um umgengni um nytjastofna sjávar.

Eðli skuldajafnaðar BA-ritgerð í lögfræði

SKÝRSLA NEFNDAR VEGNA ENDURSKOÐUNAR IÐNAÐARLAGA


Athugasemdir við umferðaröryggisáætlun

Beiting enduröflunarverðs við ákvörðun fjárhæðar eignarnámsbóta

SKÝRSLA. nefndar um stöðu barna í mismunandi fjölskyldugerðum

Notendastýrð persónuleg aðstoð á Norðurlöndum

UM SJÁVARFALLASPÁR. Náttúiufrœðingurinn 69 (I), bls , 2000.

ALRÍKISSTOFNUN FYRIR FISKVEIÐAR TILSKIPUN. 16. janúar 2009 Moskva 13. Um staðfestingu á Reglum um fiskveiðar á norðlægum fiskimiðum

Alþingi Erindi nr. Þ /53/^ 31* komudagur Q.ccrb

Hámarkshraði á tveggja akreina

sþ Tillaga til þingsályktunar [200. mál]

Nokkur blöð úr Hauksbók

Til aðalstjórnar Öryrkjabandalags Íslands.

Frumvarp til laga. um breytingu á skaðabótalögum, nr. 50/1993, með síðari breytingum. (Lagt fyrir Alþingi á 138. löggjafarþingi

Tillögur að breytingum á byggingarreglugerð til lækkunar byggingarkostnaðar íbúðarhúsnæðis

Vatnsbakki Skorradalsvatns - Almannaréttur og útivist

Frumvarp til laga. Frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Dómstigi við mat á lifandi sauðfé

Vegaöryggi bifhjólafólks. Skýrsla um norræna afstöðu

Bergen = Stavanger = Trondheim = Fredrikstad/Sarpsborg = Porsgrunn/Skien = Tromsö = 65.

Leiðbeiningar fyrir lögmenn um hvernig uppfylla má kröfur nýrra laga um persónuvernd

Héraðsdómurinn var staðfestur í Hæstarétti með vísan til forsendna hans.

Hvað ræður skattalegu heimilisfesti lögaðila skv. íslenskum skattarétti og ákvæðum tvísköttunarsamninga

sambærilegum dómum er átt við að atvikalýsingar séu svipaðar, ákært sé fyrir sömu ákvæði hegningarlaganna og að dómur hafi fallið á svipuðum tíma.

EES-viðbætir. ÍSLENSK útgáfa. við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins. Nr. 27 ISSN árgangur EB-STOFNANIR

REGLUR FYRIR ÚTGEFENDUR FJÁRMÁLAGERNINGA

2.febrúar 2015 kl. 08:30-11:00

Hugtakið gáleysi í skilningi 215. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940

LNS Norsk gruveselskap med et internasjonalt perspektiv. Adm. dir. Frode Nilsen

viðaukum. Birtist í Tímariti lögfræðinga, 3. hefti, 45. árg., 1995, bls

BÖRN Í FJÖLTYNGDUM FJÖLSKYLDUM. UPPLÝSINGABÆKLINGUR Islandsk

Siðferði og samfélagsleg ábyrgð í sveitarfélögum

33. gr. samningalaga Dómaframkvæmd Hæstaréttar Íslands fyrir og eftir lögfestingu 36. gr.

Sjáðu hvað ég fann. Þróunarverkefni í leikskólanum Laugasól. Kolbrun Vigfúsdóttir

Stjórnskipulag og stjórnsýsla Háskóla Íslands: Áfangaskýrsla 1 rektorsskrifstofa

Nordiskt samarbete - Nationell utveckling - Nordiskt utbyte Norræn skiptidvöl.

Gæsluvarðhald að ósekju

Um túlkun samninga. Eyvindur G. Gunnarsson. Lagadeild Ritstjóri Hrefna Friðriksdóttir

Leiðbeiningar um samtöl barnaverndarstarfsmanna við börn. Talaðu við mig!

Greiðsluaðlögun einstaklinga

Frumvarp til laga. (Lagt fyrir Alþingi á 145. löggjafarþingi )

Reykjanesbraut Breikkun á milli Hafnarfjarðar og Njarðvíkur

NEFNDARÁLIT UM ÞINGMANNATILLÖGU. Þingmannatillögu um sjálfbærnivottun ferðamannastaða. Nefndarálit umhverfis- og náttúruauðlindanefndar um

Um upplýsingaskyldu seljanda í fasteignakaupum og fleiri reglur laga nr. 40/2002 um fasteignakaup

Mat á áhættu vegna innflutnings á fósturvísum frá Geno Global Ltd í Noregi

Golfvellir - umhirða og viðhald Niðurstöður könnunar sem gerð var meðal golfvallastarfsmanna

Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um þjóðskrá og almannaskráningu, nr. 54/1962, með síðari breytingum.

Heimildin til nafnleyndar vitna í sakamálum BA ritgerð í lögfræði

LEIÐBEININGARIT. um kaup á ráðgjöf FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ

NORRÆN SKIPTIDVÖL STATSBYGG Í NOREGI

í öðrum norrænum ríkjum Magnús Karel Hannesson sviðsstjóri Samband íslenskra sveitarfélaga

Námur. Efnistaka og frágangur

ÚRRÆÐI 55. GR. FJÖLEIGNARHÚSALAGA VEGNA BROTA Á GRENNDARHAGSMUNUM

Formannspistill... 4 Salóme A. Þórisdóttir. Starfskenning Starfskenning Þroskaþjálfa Bryndís Guðmundsdóttir, þroskaþjálfi. Ylfa...

Transkript:

Dómnefndarálit Samkeppni um skipulag fyrir Landspítala - háskólasjúkrahús Reykjavík 12. október 2005

Dómnefndarálit Inngangur Á ríkisstjórnarfundi í janúar 2005 var samþykkt tillaga heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, Jóns Kristjánssonar, um að halda áfram undirbúningi uppbyggingar Landspítala háskólasjúkrahúss (LSH). Forval var auglýst í byrjun febrúar og sóttu 18 hópar sérfræðinga um þátttöku í samkeppni um skipulag fyrir LSH. Framkvæmdastjórn LSH samþykkti þann 1. apríl 2005 niðurstöðu Framkvæmdasýslu ríkisins (FSR) um þá sjö stigahæstu hópa sem síðan var boðið að keppa um skipulagið. LSH, Háskóli Íslands (HÍ) og FSR sömdu samkeppnislýsingu á grundvelli samþykktar ríkisstjórnarinnar. Í apríl s.l. var eftirfarandi dómnefnd skipuð: Ingibjörg Pálmadóttir formaður, Ragnheiður Haraldsdóttir skrifstofustjóri heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis, Jóhannes M. Gunnarsson framkvæmdastjóri lækninga LSH, Ingólfur Þórisson framkvæmdastjóri tækni og eigna LSH, Stefán B. Sigurðsson forseti læknadeildar HÍ. Tilnefnd af Arkitektafélagi Íslands voru Málfríður Klara Kristiansen arkitekt FAÍ og Steinþór Kári Kárason, arkitekt FAÍ. Ritarar dómnefndar voru Ásdís Ingþórsdóttir og Gíslína Guðmundsdóttir, arkitektar FAÍ og verkefnastjórar hjá Framkvæmdasýslu ríkisins. Trúnaðarmenn voru Pétur Pétursson, Ríkiskaupum og Haraldur Helgason, arkitekt FAÍ. Dómnefnd hóf störf um miðjan apríl. Samkeppnislýsingin var síðan afhent keppendum í lok apríl. Á keppnistíma svöruðu dómnefnd og verkkaupi, eftir því sem við átti, spurningum keppenda. Öllum keppendum var gefinn kostur á að kynna dómnefnd tillögur sínar og fengu til þess jafnlangan tíma. Það er mat dómnefndar að tillögurnar séu upp til hópa afar vel unnar og skýrt fram settar. Keppnislýsing Fyrir hönd LSH, HÍ og FSR skrifuðu eftirtaldir aðilar samkeppnislýsinguna: Ingólfur Þórisson, framkvæmdastjóri tækni og eigna LSH Aðalsteinn Pálsson, sviðsstjóri byggingarsviðs LSH Gísli H. Sigurðsson prófessor, yfirlæknir á svæfingagjörgæslu- og skurðstofusviði LSH Torfi Magnússon, læknir og ráðgjafi forstjóra LSH Guðbjörg Pálsdóttir, aðstoðarmaður hjúkrunarforstjóra LSH Kristín Sophusdóttir, sviðsstjóri hjúkrunar, lyflækningasviðs II LSH Kristján Erlendsson, framkvæmdastjóri kennslu, vísinda og þróunar LSH Guðmundur R. Jónsson, framkvæmdastjóri rekstrarog framkvæmdasviðs HÍ Ásta Hrönn Maack, skrifstofustjóri rekstrar- og framkvæmdasviðs HÍ Ásdís Ingþórsdóttir, verkefnastjóri FSR Dómnefnd fór síðan yfir samkeppnislýsingu og ákvað áherslur dómnefndar. Keppendur fengu afhenta keppnislýsingu og önnur keppnisgögn þann 28. apríl 2005. Dómstörf Dómnefnd hóf dómstörf um leið og allar tillögur frá hópunum sjö höfðu borist. Ekki þurfti að vísa neinni tillögu frá vegna fráviks frá skilafresti, rofinnar nafnleyndar eða ófullnægjandi framlags. Fljótlega voru sérfræðingar og ráðgjafar dómnefndar fengnir til að fara yfir þau sérsvið sem að þeim snéru og var þeirri yfirferð lokið þegar keppendum gafst kostur á að kynna tillögur sínar fyrir dómnefnd. Dómnefnd lagði mat á allar tillögurnar og komst að sameiginlegri niðurstöðu um röðun þeirra og hafði til hliðsjónar ábendingar ráðgjafa. Dómnefnd hélt alls 25 formlega fundi. Dómnefnd kallaði til sín eftirfarandi sérfræðinga til ráðgjafar: Sérfræðingar í lækningum, tækni, rekstri og hjúkrun á LSH, sem sumir eru jafnframt starfsmenn HÍ. Cecilia Bengtsson, arkitekt frá White arkitektum í Svíþjóð. Frá Noregi komu Ragnhild Aslaksen, yfirarkitekt uppbyggingar St. Olavs Hospital í Þrándheimi og Johannes Eggen Aviaplan Oslo, verkefnisstjóri 2. áfanga uppbyggingar St. Olavs Hospital í Þrándheimi. Steindór Guðmundsson, verkfræðingur hjá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins, varðandi hljóðvist. Gunnar Ingi Ragnarsson, verkfræðingur, teiknistofunni Þverá, varðandi umferðarmál. Þorbergur Karlsson og Símon Unndórsson hjá VSÓ varðandi kostnaðarmat. Hermann Hermannsson Flugmálastjórn og Jakob Ólafsson hjá Landhelgisgæslunni varðandi staðsetningu þyrlupalls.

Umsögn dómnefndar Eins og fram kemur í samkeppnislýsingu lagði dómnefnd höfuðáherslu á eftirfarandi atriði við mat sitt á tillögum: Heildarlausn Yfirbragð Ytri tengsl Innri tengsl Sveigjanleiki Hagkvæmni Í eftirfarandi umsögnum dómnefndar um hverja tillögu er litið til fyrrgreindra þátta. Tillaga merkt 428571 Höfundar: Arkitektfirmaet C.F. Möller Danmörk ARKITEKTUR.IS Ísland Schönherr Landskab Danmörk SWECO Gröner A/S Noregur Verkfræðistofa Norðurlands ehf Ísland Vönduð og sterk tillaga sem hefur mikla möguleika til nánari útfærslu. Gamla Hringbraut er færð upp að gamla spítalanum og er meginbyggingum spítalans komið fyrir sunnan hennar. Mælikvarði og hlutverk götunnar í skipulaginu er sannfærandi þar sem nýjar jafnt sem eldri byggingar spítalans raðast meðfram henni á látlausan hátt. Lögð er til skynsamleg lausn að nýtingu núverandi húsnæðis. Tillagan hefur heildstætt yfirbragð og gefur skýra mynd af svæðinu. Skipulag A-hluta lóðarinnar er mjög vel leyst, með rólegu yfirbragði í góðum tengslum við aðliggjandi byggð. Flest rými spítalans njóta dagsbirtu og nálægðar við útirými hans. Umferð sjúkrabíla, gesta og starfsmanna er vel aðgreind en staðsetning þyrlupalls er ekki eins og best verður á kosið. Umferð gangandi og akandi um svæðið er ágætlega leyst en skýra þarf aðkomu gangandi frá nýju Hringbraut. Aðalinngangar HÍ og LSH um sameiginlegt torg þarfnast frekari útfærslu en tenging spítalans við HÍ undir aðkomutorgi er vel leyst. Innri tenging starfseininga er góð en bæta má tengingu barnadeildar við bráðakjarna. Áfangaskipting tillögunnar er mjög skýr og sannfærandi. Mikill kostur er að fyrsti áfangi hennar er byggður næst núverandi spítala, sem þýðir að um heilsteypt spítalasvæði er að ræða í lok hvers áfanga. Þróunarmöguleikar tillögunnar eru miklir og er þá meðal annars litið til fyrirkomulags skurð- og greiningadeilda. Dómnefnd er sammála um að þessi tillaga uppfylli vel flest þau atriði sem samkeppnislýsing kveður á um og telur hana því besta kostinn til áframhaldandi vinnu við skipulag svæðisins.

Umsögn dómnefndar Tillaga merkt 327559 Höfundar: Henning Larsens Tegnestue A/S Danmörk S&I Arkitekter A/S Danmörk Lohfert & Lohfert A/S Danmörk Birch & Krogboe A/S, verkfræðingar Danmörk Batteríið arkitektar ehf. Ísland Landform ehf. - Ísland Sterk tillaga þar sem samþjöppun spítalans leiðir af sér áhugavert og heildstætt skipulag og skilvirka spítalastarfsemi. Þrátt fyrir að tillagan nýti sér kosti lóðréttrar umferðar í innri starfsemi spítalans með háum byggingum, virkar miðjubyggingin ekki há gagnvart núverandi byggð þar sem landið fyrir framan gamla spítalann er lækkað töluvert. Gamli spítalinn nýtur sín vel innan svæðis þar sem hann situr sem miðpunktur spítalasvæðisins en hverfur að mestu úr borgarmyndinni. Tillagan gerir ráð fyrir talsverðri nýtingu eldra húsnæðis en þó mætti hugsa sér betri nýtingu núverandi geðdeildar, sér í lagi þar sem tillagan gerir ráð fyrir uppbyggingu geðdeildar á sama stað. Miklir möguleikar eru á sköpun áhugaverðra rýma milli bygginga. Aðkoma að bráðamóttöku, um gömlu Hringbraut sunnan spítalans, er mjög vel leyst en aðalaðkoma að spítalanum og bílastæðum er ekki góð. Gönguleiðir innan spítalasvæðisins eru góðar, en göngutengsl við aðliggjandi byggð eru ekki vel útfærð. Aðalmarkmið í uppbyggingu bráðakjarna næst með ágætum hætti. Fyrirkomulag legudeilda er einstaklega gott og sveigjanleiki er mikill. Þó er staðsetning legudeildar fyrir krabbameinsdeild óraunhæf. Tengsl við háskólahlutann, um aðalaðkomusvæði, eru ágæt en lengd tengigangs orkar þó tvímælis. Fyrirkomulag háskólastarfseminnar innan spítalans er leyst á sérlega góðan hátt. Samþjöppuð starfsemi býður upp á hagkvæmni í rekstri og talsverðan sveigjanleika í starfsemi hans en það sama á ekki við um uppbyggingu hans né þróunarmöguleika. Áfangaskipting er erfið og fyrsti áfangi er mjög stór.

Umsögn dómnefndar Tillaga merkt 131195 Höfundar: DISSING+WHITLING arkitektfirma a/s Danmörk ÚTI&INNI arkitektar Ísland OWP/P Architects Inc. USA Buro Happold Engineers UK Jeppe Aagaard Andersen Danmörk David Langdon USA/UK Áhugaverð tillaga þar sem sannfærandi skipulagshugmynd er skýrt fram sett. Tillagan fellur einkar vel að aðliggjandi byggð og gamli spítalinn nýtur sín vel sem miðpunktur aðgengis að nýjum spítala. Mikið af eldri byggingum eru nýttar en tengingar við þær ekki vel útfærðar. Tenging háskóla og spítala um bókasafn er vel heppnuð en staða háskólans innan spítala er óskýr. Hugmyndin um svæðið er heilsteypt, útirými eru aðlaðandi og virkar breiðgatan vel þar sem allt í senn er aðalaðkoma, aðkoma að bílageymslum og bílastæði. Umferðarflæði um svæðið er gott, aðkoma neyðarbíla auðveld en staðsetning þyrlupalls er lakari. Tenging við nágrannahverfin, hvort sem er fyrir akandi eða gangandi vegfarendur er góð. Aðalmarkmið um uppbyggingu bráðakjarna næst með sæmilegum hætti. Hins vegar er bráðakjarninn nokkuð dreifður og því fjarlægðir milli eininga óþarflega miklar. Þannig er mikil fjarlægð milli barna- og kvennadeilda annars vegar og bráðamóttöku hins vegar. Þá er töluverð fjarlægð milli skurðdeildar og gjörgæsludeildar. Stór ókostur við skurðog greiningadeildir er hversu lítillar dagsbirtu þær njóta. Fyrirkomulag legudeilda er ekki eins og best er á kosið og sveigjanleiki lítill. Lítil samtenging legudeildaálma er ókostur. Tillagan býður upp á mikinn sveigjanleika skurð- og greiningadeilda, en mjög lítinn í legudeildum. Áfangaskipting er erfið.

Umsögn dómnefndar Tillaga merkt 170644 Höfundar: ASK arkitektar ehf. Ísland Línuhönnun hf. Ísland RTS verkfræðistofa Ísland (undirráðgjafar LH) Norconsult Noregur (undirráðgjafar LH) Medplan as arkitekter Noregur Landslag Ísland Hospitalitet A/S Noregur Prof. Per Teisberg Noregur Heilsteypt og skýrt fram sett tillaga. Yfirbyggður gönguás tengir saman alla megin starfseiningar spítalans, allt frá aðkomutorgi við gamla spítalann að verslunarmiðstöð vestast á U-reit. Gamla spítalanum er gert hátt undir höfði við aðalinnkomutorg spítalans en tillagan gerir ekki ráð fyrir mikilli nýtingu eldri bygginga. Stærð torgsins orkar tvímælis. Ekki hefur verið hugað nægjanlega vel að tengingum og samspili nýrra bygginga við eldri byggingar á svæðinu. Yfirbragð nýs spítala er heildstætt, rými milli legudeilda virka vel, eru björt og skjólgóð. Umferð gangandi vegfarenda um svæðið er auðveld og aðkoma gangandi frá Hringbraut að aðalmóttöku er kostur. Umferð sjúkrabíla, gesta og starfsmanna er vel aðgreind. Aðkoma að aðalinngangi spítalans er skýr sem og aðkoma að bílageymslum. Aðkoma sjúkrabíla er flókin. Staðsetning þyrlupalls er góð. Starfsemi LSH og HÍ er mjög samtvinnuð og því ekki sérstök aðkoma að byggingum HÍ né bílastæði sem er ókostur. Aðalmarkmið um uppbyggingu bráðakjarna næst með ágætum hætti og skipulag og staðsetning starfseininga spítalans er í heild rökrétt. Dreifing starfseminnar leiðir þó af sér að fjarlægðir milli starfseininga eru í meira lagi. Tillagan býður upp á ágætan sveigjanleika í spítalastarfseminni en þróunarmöguleikar og sveigjanleiki við uppbyggingu eru takmarkaðir. Áfangaskipting er þokkaleg hvað spítalastarfsemina varðar en heildaruppbygging svæðisins er ómarkviss. Tillagan virðist fela í sér töluverða möguleika til hagræðingar hvað varðar samvirkni bráðakjarna og dag- og göngudeildarstarfsemi en dreifð starfsemi með auknum umferðaleiðum geta valdið auknum rekstrarkostnaði.

Umsögn dómnefndar Tillaga merkt 624874 Höfundar: Carl Bro A/S - Danmörk Arkís ehf. - Ísland Aarhus Arkitekterne A/S Danmörk Friis & Moltke A/S Danmörk Verkfræðistofan Hnit hf. Ísland Landmótun ehf. Ísland Að ýmsu leyti athyglisverð tillaga sem reynir að vinna með mælikvarða aðliggjandi byggðar með dreifðum, lágstemmdum byggingum á opnum grænum svæðum. Tillagan fellur ágætlega að eldri byggð og gamli spítalinn nýtur sín vel við miðlægt aðkomutorg nýs spítala. Nýting eldra húsnæðis er lítil, aðeins gamli spítalinn og barnaspítali fá að standa. Samþætting háskóla og spítala er óljós, líkt og um aðskilda starfsemi sé að ræða. Byggingar eru mjög dreifðar þannig að erfitt yrði að ná öllum markmiðum um gott spítalaskipulag. Tillagan ber með sér heildstætt yfirbragð, með skjólgóðum og björtum rýmum í kringum legudeildir en útirými milli legudeilda og kjarna víða ósannfærandi. Staðsetning bráðkjarna við barnaspítala er góð, en gangarými í heild hlutfallslega of mikið sem hefur m.a. áhrif á rekstrarkostnað. Sveigjanleiki skurð- og greiningadeilda er takmarkaður þar sem legudeildir umlykja alla kjarna spítalans. Legudeildir eru frekar ósveigjanlegar og þá sérstaklega starfsemin. Umferðarkerfi tillögunnar er afleitt. Aðkoma frá Eiríksgötu er mjög erfið og úrlausn aðkomu frá Hringbraut, hvort sem er neyðarbíla, starfsmanna eða aðfanga, er ekki góð. Tenging milli HÍ og LSH er illa leyst. Áfangaskipting er skýr en fyrsti áfangi heldur umfangsmikill. Þróunarmöguleikar nokkrir, þ.e einstaka einingar gætu tekið breytingum.

Umsögn dómnefndar Tillaga merkt 160755 Höfundar: VST hf. Ísland NBBJ Ltd. USA/UK ARUP USA/UK Landmótun Ísland VA arkitektar ehf. Ísland Frumleg og djörf tillaga en ekki nægjanlega skýrt framsett hvað varðar innri starfsemi spítalans. Staðsetning háskólabygginga á núverandi spítalasvæði fellur ágætlega inn í borgarmynstrið, hvað mælikvarða og þéttleika varðar og göturými gömlu Hringbrautar virkar sannfærandi. Yfirbragð háskólasvæðis í tveggja og þriggja hæða byggingum er notalegt og í mælikvarða borgarinnar, útirými björt og skjólgóð. Staðsetning háskólasvæðisins takmarkar hinsvegar vaxtamöguleika þess og eykur fjarlægð frá HÍ og er ekki í samræmi við samkeppnislýsingu. Nýting eldri bygginga er aftur á móti mjög lítil. Gamli spítalinn, sem nýtur sín vel sem miðpunktur háskólasvæðisins, og barnaspítalinn, sem nýttur er fyrir geðdeild, fá að standa. Byggingar nýs spítala eru hins vegar í algerri andstæðu, og er yfirþyrmandi mælikvarði legudeilda frjórri hugsun yfirsterkari. Vetrargarðar í skurð- og greiningadeildum eru ósannfærandi og skortur á náttúrulegri birtu í aðgerðarýmum er mikill ókostur. Umferð sjúkrabíla, gesta og starfsmanna er vel aðgreind. Umferð um svæðið gengur vel upp, aðalaðkoma er skýr og bílageymslur gesta eru rökrétt staðsettar við aðalinngang. Gott tillit er tekið til gangandi vegfarenda um svæðið. Staðsetning þyrlupalls er ekki góð. Aðalmarkmið um uppbyggingu bráðakjarna næst með þokkalegum hætti. Barnaog kvennadeildir eru staðsettar of langt frá bráðakjarna. Fyrirkomulag legudeilda nokkuð gott, þær eru bjartar en miðrými þeirra er án dagsbirtu og sveigjanleiki er lítill. Erfitt er um vik að stækka spítalann frekar eða þróa hann. Legudeildir hafa vegna forms ekki mikinn sveigjanleika hvað varðar stærð og aðra nýtingu sé þess þörf í framtíðinni. Áfangaskipting skýr en erfið í útfærslu.

Umsögn dómnefndar Tillaga merkt 101010 Höfundar: de Jong Gortemaker Algra architects and engineers Holland ALARK arkitektar Ísland Fjölhönnun ehf. Ísland Landark ehf. Ísland ARUP technical consultant England Tillaga með nokkuð þungt yfirbragð samþjappaðra bygginga, sem vinnur einungis að mjög takmörkuðu leyti með aðliggjandi byggð. Staða gamla spítalans er afgerandi við aðaltorg svæðisins en hlutverk þess að öðru leyti lítt skilgreint. Lítið er nýtt af eldri byggingum, aðeins gamli spítalinn og barnaspítali fá að standa. Hringvegur kringum byggingarnar á lóðinni rammar þær inn og skilur eftir ófullgert svæði utan hans. Dagsbirtu nýtur í flestum rýmum spítalans en ókostur er þó að hluti dag- og göngudeildarstarfsemi gera það ekki. Ytri rými milli hærri bygginga eru þó þröng og lítt aðlaðandi. Aðalinngangur er augljós en aðkoma að honum órökrétt og útfærsla hans ekki sannfærandi. Aðkoma að byggingum HÍ er skýr og skemmtileg. Umferðarkerfið er nokkuð flókið, neyðarbílar hafa aðeins eina aðkomuleið en aðkoma að bílastæðakjallara er ágætlega leyst með mörgum inngöngum. Staðsetning þyrlupalls kemur vel út. Staðsetning skurðstofa við barna- og kvennadeild er góð og útfærsla legudeilda er að mörgu leyti vel leyst. Tillagan býður ekki upp á mikinn sveigjanleika.

Niðurstaða Að lokinni yfirferð dómnefndar á tillögum voru þeim gefnar einkunnir á kvarðanum 0-80 stig. Þá voru umslög með tilboðsupphæðum opnuð, en tilboð gátu mest gefið 20 stig. Heildarstigafjöldi tillagna er sem hér segir: Sæti 1 2 3 4 5 6 7 Tillaga nr. 428571 327559 131195 170644 624874 160755 101010 Stig dómnefndar 72 60 54 57 45 50 40 Tilboðsupphæð 12.000.000 12.100.000 12.000.000 14.200.000 12.000.000 31.000.000 35.500.000 Stig fyrir tilboð 20,0 19,8 20,0 16,9 20,0 7,7 6,8 Samtals 92,0 79,8 74,0 73,9 65,0 57,7 46,8 Það er því niðurstaða dómnefndar að tillaga nr. 428571 sé besti kosturinn til nánari útfærslu á deiliskipulagi og að ráðgjafar þess hóps sem að tillögunni standa verði ráðgjafar Landspítala - háskólasjúkrahúss um áframhaldandi uppbyggingu hans. Dómnefnd leggur því til við ráðherra að gengið verði til samninga við höfunda tillögu nr. 428571. Lokaorð Það er einróma álit dómnefndar að í þessari samkeppni hafi mjög hæfir hópar sérfræðinga lagt sitt af mörkum við gerð skipulags fyrir Landspítala - háskólasjúkrahús og skilað tillögum sem allar eru athyglisverðar og mjög vel unnar. Reykjavík 6. október 2005 Ingibjörg Pálmadóttir Ingólfur Þórisson Jóhannes M. Gunnarsson Ragnheiður Haraldsdóttir Stefán B. Sigurðsson Steinþór Kári Kárason Málfríður Klara Kristiansen

Verðlaunatillagan 428571 í smækkaðri mynd

Prentun: Leturprent / Hönnun: Ottó auglýsingastofa ehf Ljósmynd frá fæðingardeild á forsíðu: Þórdís Erla Ágústsdóttir Loftmynd á forsíðu: Mats Wibe Lund Umsjón: Ásdís Ingþórsdóttir, arkitekt Framkvæmdasýsla ríkisins